Saga um tilfinningar – höfundur Valgerður Ólafsdóttir
Nýlega kom út bókin SAGA um tilfinningar eftir Valgerði Ólafsdóttur. Hér er á ferðinni barnasaga með leiðbeiningum fyrir fullorðna um hvernig þeir geta samhliða lestri góðrar barnasögu örvað umræður um tilfinningar barna og aukið vægi þeirra í umgengni okkar við börn og uppeldi þeirra. Þetta er fyrsta bókin í bókaflokki er hefur hlotið heitið Meðvitað uppeldi. Bókin er ríkulega skreytt myndum eftir Bryndísi Björgvinsdóttur.
Valgerður Ólafsdóttir er með MA gráðu í þróunarsálfræði. Hún hefur unnið við kennslu og námskeiðahald um aðferð í uppeldi barna sem á íslensku er kölluð tilfinningaleikni og var meðal annars þróunarverkefni á leikskólanum Garðaborg undir stjórn höfundar.
Nánari upplýsingar má fá á www.medvitaduppeldi.is
Bókin er til sölu í bókaverslunum um allt land.
Posted: February 27th, 2009 under Bækur, Uppeldi.
Comments: none
Write a comment